05.02.2012 12:15

Austur-afrísk grænmetissúpa með hnetum og sætum kartöflum

 

Austur-afrísk grænmetissúpa með hnetum og sætum kartöflum

Fyrir 4

Innihald

  • 1 msk kókosolía
  • 1 laukur, saxaður gróft
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir gróft
  • 2 g ferskt engifer, saxað smátt
  • 0,5 msk cumin (ekki kúmen)
  • 1 msk coriander
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk negull
  • 250 g tómatar, saxaðir gróft
  • 450 g sætar kartöflur, saxaðar gróft
  • 1 stór gulrót, söxuð gróft
  • 750 ml vatn
  • 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1 gerlaus grænmetisteningur
  • 20 g cashew hnetur, þurrristaðar á pönnu
  • 1 tsk cayenne pipar (má sleppa)
  • 1 msk hnetusmjör (hreint og án viðbætts sykurs)
  • Nokkur corianderlauf (má sleppa)

Aðferð

  1. Afhýðið laukinn, hvítlaukinn, engiferið, gulræturnar og sætu kartöflurnar og saxið allt gróft.
  2. Saxið tómatana einnig gróft.
  3. Hitið kókosolíuna í stórum potti. Hitið laukinn í um 7 mínútur eða þangað til hann er orðinn mjúkur. Ef vantar meiri vökva á pönnuna, notið þá vatn.
  4. Bætið hvítlauk, engiferi, cumin, coriander, kanil og negul saman við.
  5. Bætið tómötunum, sætu kartöflunum og gulrótinni saman við. Hitið í um 5 mínútur.
  6. Hellið 750 ml af vatni út í pottinn ásamt grænmetisteningnum.
  7. Látið suðuna koma upp og leyfið þessu að malla í um 30 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
  8. Takið súpuna af hellunni og látið kólna í nokkrar mínútur.
  9. Á meðan skuluð þið hita pönnu (án olíu) og þurrrista hneturnar í um 2 mínútur.
  10. Hellið súpunni í matvinnsluvél ásamt þurrristuðu hnetunum og hnetusmjörinu og blandið þangað til allt er orðið vel maukað. Áferðin fer eftir smekk ykkar þ.e. ef þið viljið hafa grænmetisbita í súpunni getið þið blandað hana skemur en maukið lengur fyrir mýkri áferð. Einnig má nota töfrasprota eða blandara.
  11. Hellið súpunni nú í pottinn og hitið vel.
  12. Saltið og piprið eftir smekk.

 

03.02.2012 19:30

Ekki uppskrift

Ég held að bloggið mitt sé að breytast í uppskriftavef, 3 uppskriftir í röð hjá mér en nú er líka komið af þeim.  Ég er alveg fínn kokkur en oftast nenni ég ekki að elda, nema það sé súpa.  Ótrúlegt hvað mér finnst það skemmtilegt, en reyndar eru fleiri skrítnir hlutir sem mér finnast skemmtilegir eins og að fúaverja, fólk heldur alltaf að ég sé að djóka þegar ég segi frá því. 

Geri guðdómlega súpu og fúaver pall og þá væri sumarhelgi fullkomin hjá mér, tala nú ekki um ef ég hefði kallinn minn hjá mér og smá hvítvín í glasi.

En alla vega lífið er alveg ágætt núna, þrátt fyrir fjarveru Þráins en það er nú kannski bara vegna þess að það er búið að vera nóg að gera í vinnunni, eiginlega svo mikið að ég er ekkert annað búin að gera þessa vikuna, nema jú passa RD, funda með slysó, vinna fyrir slysó, versla, prjóna og já sem sagt alveg haft helling að gera fyrir utan vinnu líka.  Já og ég fékk að vita að ég væri mjög lág í D vítamíni og þarf að taka tvöfaldan skammt í hálft ár til að ná upp réttum skammti.  Kannski það útskýri af hverju ég er alltaf svo þreytt og syfjuð.

Jeiiiiiiiiiiii  það er verið að sýna Bugsy Malone hjá Versló, er að spá í að kaupa miða fyrir okkur Ástrós Mirru.  Ég elskaði þessa mynd og held að það hljóti að vera gaman fyrir hana að sjá leikritið.

Jæja ætla að grípa í prjónana en vildi bara sýna ykkur sætasta gaurinn fyrst.

 

If you happen to see the most beautiful boy.....

Þangað til næst, ykkar Kristín Jóna

03.02.2012 12:49

Kjúklingur ala Maggi The

 

Með þessu var brauð (snittubrauð), hrísgrjón, melóna skorin niður bita ekki of litla  kókos mjöli stráð yfir ,  akúrka og tómatur í grísku jógurti

 

Uppskrift fyrir 4.

 

4 kjúklingabringur skornar niður í bita.

1 laukur.

Hálfur hvítlaukur. Pressaður

Indverskt curry.

1 chilli ferskur.

1 dós sýrður rjómi.

Red curry paste.

Jalepeno eftir smekk.

Hálf dós chutney mango.

Ólífur eftir smekk.

1 pela rjóma.

1 matskeið oscar kjötkraft.

 

 

Steikja lauk og hvítlauk á pönnu og brúna,  setja kjúklingabitanna út í og krydda vel með indv.curry og velta vel upp úr lauknum. Bætið síðan vatni á pönnuna með kjötkraftinum í  þegar kjúllinn hefur brúnast aðeins og látið malla.  Síðan er restin sett út í eitt af öðru og látið malla aðeins.

Síðan sett í ofn, 200 gráður í ca 15-20 mín. Hella rjóma yfir þegar sett er inn í ofn.

Meðlæti: Hrísgrjón og snittubrauð með hvítlaukssalsa. Má hafa restina af mango með sem sultu. J

29.01.2012 13:36

Nammikaka Fiðra frænda

 

 

Hráefni:

Botn –                                                                    Karamellusósa –

40gr. Smjör                                                           40 gr. Smjör

100gr súkkulaði                                                    100 gr púðusykur

3 egg                                                                      2 msk rjómi

250 gr sykur                                                          100 gr pekanhnetur

150 gr hveiti

1 tsk salt                                                                Ofan á

1 tsk vanilludropar                                                150 gr súkkulaði, grófsaxað

 

Aðferð:

Hitið ofninn í 175 °

Bræðið saman súkkulaði og smjör í potti við vægan hita. Kælið aðeins.

Þeytið egg og sykur í hrærivél þar til blandan verður létt og ljós

Hellið súkkulaðinu í mjórri bunu saman við og blandið vel

Bætið þurrefnum og dropum varlega saman við

Smyrjið formið með smjöri eða olíu og hellið deiginu í

Bakið kökuna í 17 mínútur

Hitið smjör og sykur að suðu í potti og látið malla í 1-2 mínútur.  Hrærið stöðugt í á meðan.

Takið af hellunni og kælið aðeins

Bætið rjómanum út í og hrærið vel saman

Grófsaxið hneturnar og stráið þeim yfir kökuna

Hellið karamellusósunni yfir

Bakið kökuna í 17 mínútur

Stráið súkkulaðinu yfir um leið og kakan er tekin úr ofninum svo það bráðni yfir

Berið fram með ís eða rjóma

 

 

29.01.2012 07:53

Kjúkprikusúpan.

 

Gerði þessa líka frábæru súpu í gær og fékk góða gesti sem fengu ekki nóg af súpunni minni, svo af því að þetta var bullað uppúr mér þá ákvað ég að skrifa niður uppskriftina sem ég geri allt of sjaldan

Nafngiftina á ung stúlka Bjartey, sem var stödd í matarboðinu og kunnum við henni þakkir fyrir.

 

6 Kjúklingabringur, skornar í þægilega munnbita

5 Kartöflur, einnig skornar í þægilega munnbita

Hálf – 1 Sæt kartafla

Hálfur poki frosnar gulrætur

Tveir laukar

Einn púrrulaukur

Rúmlega hálfur poki frosin paprika

Ein dós brushetta mauk

Ein dós kókósmjólk

Heinz chilisósa 4 msk

Smá sletta af sinnepi

Kryddað með

Karrý, chili, heilmikið af paprikukryddi, salt, hvítlaukspipar og aðeins af kjöti og grillkryddi

Þrír kjúklingasúputeningar

 

Allt sett í pott með gleði og ánægju og soðið þar til tilbúið.

 

Ps. held ég hafi ekki gleymt neinu.

28.01.2012 15:05

Kristín skiptir á vatni á fiskabúrum.

 

Sem grasekkja þarf ég að gera allt.  Og þá meina ég gera allt sem eiginmaðurinn hefði gert væri hann heima.  Til að mynda að skipta um vatn á fiskabúrunum 3 sem eru hér á heimilinu.  Ekki bað ég um þessi fiskabúr, ekki bað ég um að fá þetta hlutverk en mér er ætlað að sjá um alla hluti núna svo það er best að vinda sér í verkið.

Ok, það er einhver 300 metra slanga inní geymslu sem þarf að nota það er nefnilega hægt að fara með hana tvo hringi í kringum íbúðina svo hún nái á milli allra fiskabúranna.  Það þarf að finna einhvers konar hálfmána sem henni er stungið í gegnum svo hún geti hangið á fiskabúrinu.  Tékk

Set hinn endann ofan í baðkarið og svo ..... úps ég þarf víst að sjúga svo vatnið fari að streyma í gegnum slönguna.  Ok, einn, tveir og þrír..... soooooooooooooooggg og shit, shit shit, helvítis fiskabúrsvatn fyllti munninn á mér.   Hendi slöngunni ofan í baðkarið aftur og fylgist með meðan það lekur úr búrinu.  Þið vitið að það er sko ákveðið magn sem á að taka úr búrinu í hvert sinn, má ekki vera of mikið og alls ekki of lítið því þá ruglast systemið í búrinu og eymingjast fiskarnar deyja bara.  Ég held ég sé alveg með þetta með magnið á hreinu.  Jæja, búin að sjúga uppúr einu búri en þá eru tvö eftir.  Verð að viðurkenna að æfingin skapar meistarann, það er staðreynd, því það gekk betur að sjúga uppúr næstu tveimur. 

Jæja, hálfnað verk þá hafið er..... nei, nú er verkið hálfnað því næst á að finna einhverja rosalega græju með hitamæli sem festa skal á kranann á baðinu og svo slönguna á hinn endann en róleg, alveg róleg, því það má ekki gerast fyrr en vatnið er akkúrat 24 gráður.  Þannig að það þarf að bíða aðeins, minnka smá hitann... nei auka aðeins og jú núna er ég með þetta.  24 gráður og þá skal slöngunni stungið á hinn endann, en það er ekkert venjulegt verk, þarf helst verkfræðing í það en af því ég hafði góðan leiðbeinanda þá tókst mér þetta skammlaust.  Bað Mirruna að standa við búrið svo ekki færi allt á fleygiferð þar þegar ég setti kraftinn á vatnið.  Og svo er bara að bíða.... en helv. drulla rótast uppúr búrinu þegar vatnið kemur með svona miklum krafti en ég vona bara að hún setjist svo aftur á botninn og búrið verði sama skrautprýði og það hefur verið í stofunni hér eftir sem áður og mest um vert að fiskunum líði vel.

Allt í allt tók þetta ekki nema 35 mín.  Iss og ég sem hélt þetta væri eitthvað mál.

 

Þangað til næst.

Ykkar Kristín Jóna, grasekkja

 

 

ps. Ok, þetta er ekki búrið okkar en það er alveg eins flott.

28.01.2012 09:20

Ég hugsa, þess vegna er ég!

er máltæki sem ég hef alltaf heillast af.  Mér datt það í hug í morgun þegar ég var að hugsa um hvernig síðasta vika hefur verið.  Og ég held að umferðin og fastir bílar hefðu verið færri ef fleiri hefðu munað eftir þessu máltæki og farið eftir því.

Ég er búin að fara með strætó því ég er grasekkja og ekki til í að að sitja föst einhvers staðar í snjónum og hafa engan mann til að redda mér, þurfa að hringja í vini og vandamenn sem hafa nóg með sjálfa sig eða fá hjálparsveitarmenn sem eiga að vera að hugsa um sínar fjölskyldur eða vinnu á þessum tíma  en ekki fólk sem æddi út á bjartsýninni einni saman.

Ég ákvað þarna á þriðjudaginn að hreyfa ekki bílinn þar sem ég sá að það var brjáluð snjókoma og snjófjúk og óvissa með færðina.  Ég tók ákvörðun að taka strætó í vinnuna.  Fór klukkan 8 út á stoppustöð og stætó kom einhverjum mínútum síðar, en umferðin var svo hæg til Reykjavíkur að ég var komin niður í Borgartún kl. 9.30.  90 mínútur í strætó að fara leið sem ég er í 15 mín að keyra ef engin umferð er.  Þetta er náttúrulega rugl.

Daginn eftir var búið að ryðja allar götur og ég fór á bílnum í vinnuna en svo á fimmtudeginum var aftur farið að snjóa og fjúk og bara leiðindaveður.  Ég horfi út um gluggann til að skoða aðstæður.  Sé þar sem verið er að ýta bíl út af bílaplaninu hjá grænu blokkinni, og þegar búið er að ýta honum út af planinu, þá sat hann fastur á götunni, þeir ýta honum áfram og veiiiiii hann keyrir 2 metra en situr þá fastur í beyjunni.  Nei andsk.  hugsaði ég ætlar maðurinn að láta ýta sér alla leið í vinnu eða hvað.  Hvurs lags andsk. frekja er þetta.  Skyldu bílinn eftir og farðu með strætó.  Og já þessir 5 menn sem voru að ýta þarna á planinum ýttu 3 bílum svona út af planinu, út á götu, út úr beygjunni.  Eins og þetta sé eitthvað áhugamál hjá þessum 5 mönnum. 

Ok, ég ákveð að fara með strætó, ætla ekki að vera eins og þessi fífl, sorrý að ég tek svona sterkt til orða.  En ég fer út á stoppustöð og bíð og bíð og bíð og bíð og aldrei kemur vagninn.  Ég er búin að bíða í 35 mín þegar ég ákveð að fara bara heim og vinna heima en viti menn, þá sé ég vagninn.  Það voru þá tveir vagnar fastir innar á völlunum og líklega vegna þess að ekki var hægt að ryðja nógu vel vegna fastra bíla á götunum oþh.

Ferðin með stætó tók ekki svo langan tíma en með biðinni þá tók þessi ferð aftur 90 mín.  Þannig að í raunninni voru tveir dagar í þessari viku sem ég var 10 tíma frá vinnunni en skilaði bara 7 tímum í vinnu, hefði aldrei náð að skila 8 tímum þó ég hefði viljað. Eins gott að þetta verði ekki vaninn, ég hef ekki tíma til þess.

En svo kom hér hetja á gröfu og skóf allt bílaplanið hjá okkur á fimmtudagskvöldið og menn færðu bílana til nema ég sem var alveg úti í enda og hélt að það yrði í lagi með mig en svo fór ég að hugsa að kannski ætti ég nú að drífa mig út og færa bílinn, en samt það var eiginlega ekkert pláss lengur úti á götu, svo ég hætti við. En eftir nokkrar mínútur þá ákvað ég að fara alla vega út og tala við strákana sem voru að stjórna þessu og þeir sögðu mér að færa bílinn minn og ég skyldi bara bakka yfir hinum megin þar sem búið var að ryðja.  Ég moka af bílnum og sé að það eru ágætir skaflar í kringum hann en hugsa með mér að Doddi er aldeilis duglegur í snjó svo ég ætti nú bara að geta bakkað út úr þessu og yfir í næsta stæði.  Ég sest inn og set í bakk, byrja aðeins að bakka en hann er bara svolítið fastur en ég gef aðeins meira í og svo koma tveir nágrannar mínir og eru tilbúnir að ýta mér yfir, þegar ég allt í einu fatta að ég er í handbremsu ennþá.  Úps, ég opna dyrnar og segi strákunum það skellihlæjandi.  Tek úr handbremsu og bakka yfir.  Auðvitað gat Doddi þetta eins og ekkert væri.  Samt skil ég hann stundum eftir heima til öryggis því hann er ekki jeppi með fjórhjóladrif og eitthvað svona háa og lága drifið.

En nú er snjórinn næstum farinn og ég sakna hans eiginlega, hefði alveg verið til í að hafa hann lengur, fannst þetta pínu skemmtilegt þó það tæki tíma.  Við íslendingar höfðum sko nóg um að tala þegar veðrið er svona umhleypingasamt.

 

The magic land

 

 

 

21.01.2012 08:21

Nýtt ár - nýjir tímar

Jæja þá er nýtt ár komið, árið 2012.  Það þýðir 12 ár síðan Ástrós Mirra fæddist og það vantar bara eitt ár uppá að ég fylli næsta áratug hvernig svo sem getur staðið á því.  

Þráinn er farinn aftur út til Noregs og þetta gengur allt mun betur núna en fyrsta þegar hann fór fyrst út.  Hann er líka kominn með betri nettengingu og það þýðir að auðveldara er að tala við hann og sjá hann, það skiptir nefnilega svo miklu máli að geta séð hann, ekki bara tala.  Svo er það bara þannig að þó það sé vont þá venst það.

Við Ástrós Mirra erum að plana ferðina okkar til Noregs en við ætlum að fara út 28. feb. nk. og vera í tæpa viku.  Hlakka mikið til að sjá þetta allt hjá honum og sjá þennan fallega bæ.

Svo er ég að fara til Budapest í lok apríl með vinnufélögunum og er ég búin að gera ráðstafanir til að ég verði ekki ein.  Búin að fá frábærar konur til að ættleiða mig í ferðinni.  Við ætluðum nú að fá okkur 3 manna herbergi saman en þegar við komumst að því að 3 manna herbergi er bara 2 manna herbergi með aukabedda í þá hættum við, við það þar sem við erum allar komnar yfir fertugt og viljum góð rúm að sofa í.  Svo við tökum bara 2 + 1 og sjáum svo til hvernig við skiptum okkur, en það þýðir að sú sem er ein í herbergi verður alltaf tekin með þegar hinar fara í morgunmat og út að leika.  Ég er meira að segja farin að hlakka til þessarar ferðar sem ég hélt ég myndi ekki gera í ljósi þess að Þráinn minn kemur ekki með.

Ég er búin að sjá það út núna síðustu vikur hvað maður er ofboðslega háður honum.  Hvað maður er líka orðinn háður því að hann geri þetta og ég geri hitt, svo þegar hann er ekki þá ÚPS allt í einu verð ég að gera allt sjálf.  Dæmi um það eru þessar sögur sem ég var reyndar búin að setja á fésið:

 

#1  -  Fann vel fyrir grasekkjunni í mér í dag.

Er að fara að sækja Mirruna niður í Ljósheima og smá snjóbylur kominn í Hafnarfirði þegar ég uppgötva að rúðuþurrkurnar virka ekki. Ég ákveð að það borgi sig ekki að keyra í bil og engar þurrkur. Sný við heim en uppgötva þá að veðrið virðist vera að ganga niður svo ég ákveð aftur að fara niður í Ljósheima og þegar ég er komin til móts við N1 í Hafnarfirði þá er aftur kominn éljagangur og engar rúðuþurrkur svo ég ákveð að á N1 hljóti að vera karlmenn sem geti aðstoðað mig við að athuga hvort það sé farið öryggi hjá mér en Nei, starfsmaðurinn þar benti mér að fara á smurstöð en þær eru ekki opnar á laugardögum svo ég aftur út í bíl og andskotinn ég get ekki verið rúðuþurrkulaus í einhvern tíma og hringi bara til Norge í Eiginmanninn sem hafði bara ekki hugmynd um hvað öryggin væru í bílnum.
Já nú voru góð ráð dýr .... eða ekki.

Grasekkjan fór í hanskahólfið og sótt helv. manualinn og fór að lesa sér til. Fann hvar öryggin eru og fann út hvaða öryggi var farið, ákvað að gera þetta einfalt og rífa út öryggið fyrir útvarpið því það er alveg hægt að keyra í kafaldsbyl með ekkert útvarp og skipti um öryggi og viti menn (og konur) þurrkurnar í gang. Svo ég keyri niður í Ljósheima, sæki Mirruna og við í Elko að sendast fyrir Konný systur. Þá allt í einu eru þurrkurnar aftur dottnar úr sambandi og kominn kafaldsbylur aftur.
Nú hvað átti ég þá að rífa úr sambandi? Humm - airbags þarf ekki að hafa farþegamegin ef enginn er farþeginn nema dóttirin í aftursætinu svo enn var rifið úr öryggi og skipt um.

Við komumst heim og á morgun verð ég að finna út hvar getur maður keypt öryggi svo ég geti sett ný í staðinn fyrir þessu ónýtu og síðan er það seinni tíma vandamál (Þráinn kemur nú heim á föstudaginn) að finna út af hverju rúðupissið drepur öll öryggi hjá okkur.

 

#2  -  Jæja enn og aftur reyndi á grasekkjuna áðan. Við mæðgur í letistuði og leigðum okkur mynd, hún er öll hoppandi og skoppandi og hleypur yfir 6 kafla. Ég hringi að athuga hvort annað eintak sé inni en svo er ekki svo við megum koma aftur á morgun og fá aðra mynd. 

Flott tek diskinn úr spilaranum en enginn diskur á sleðanum!!!!!!! Hvar er diskurinn? Hristi spilarann og enn enginn diskur. 

Ok, áður en ég veit af er Mirran mín búin að sækja skrúfjárn og við byrjum að skrúfa sundur spilarann. Reynum að hringja í Þráin á Skype en hann ekki online svo við klárum verkið. Spilarinn í sundur og með afli náðist að taka hann í sundur og diskurinn datt út. Við skrúfuðum saman aftur og allt í lagi á þessu heimili. Held ég sé að virkilega farin að finna fyrir gamla jaxlinum sem gat allt sjálf áður en ég eignaðist mann sem gat flest betur. 

Ok, aftur í leti og nú er það idolið....................

 

Svo eins og þið sjáið þá rifjast upp gamlir taktar með því að hafa bara sjálfan sig til að stóla á en auðvitað er það samt ekki þannig að ég hefi engan til að stóla á, en málið er bara svolítið þannig að Þráinn minn á ekki auðvelt með að biðja annað fólk um greiða en mikið er hann alltaf duglegur að hlaupa til ef einhver biður hann um greiða og það er kannski þess vegna sem ég kann ekki lengur að biðja annað fólk að hjálpa mér en ég fékk nú að heyra það í vikunni frá honum bróður mínum Aron að framvegis ætti ég ekki að stóla á einhverja sölumenn í tölvubúðum með ráðleggingar og þess háttar enda búin að láta þá rýja mig innað skinni á meðan hann hefði verið 20 mín með að benda mér á rétta hlutinn sem hefði kostað 3sinnum minna.  Og já hann bætti því meira að segja við, að framvegis myndi hann móðgast ef ég leitaði ekki ráða hjá honum, því hann væri bara eins og ég með myndatökurnar, honum finnst gaman að því og vill fá að hjálpa.

Aron er svona eins og Þráinn segir alltaf já þegar hann er beðinn um aðstoð og það er bara yndilsegt að eiga svoleiðis bróður.  Hann er þvílíkt búinn að hjálpa okkur Ástrós Mirru að koma netinu almennilega í tölvuna hennar en það gekk erfiðlega án hans.

Takk fyrir okkur Aron.

Konný systir er í tækniskólanum í ljósmyndanámi og ég ætla að taka sömu verkefni og hún fær í ljósmyndaáfanganum og er núna svo uppfull af hugmyndum um myndir sem eiga að sýna hvaðan ég kem að ég get bara ekki beðið eftir að það birti.  Ansk. Djöf. myrkur allaf hérna gjörsamlega óþolandi.  Ég veit líka svo sem að þessi mánuður og sá næsti eru mér erfiðastir enda jólin búin og allt bara venjulegt aftur með meira myrkri og leiðindaveðrum alla daga.  En í mars fer að birta og þá fæ ég vor í hjartað.  Hlakka til vorsins enda er ég vorbarn.

 

Jæja þangað til næst;

Ykkar Kristín Jóna

 

 

Me once again

31.12.2011 09:32

Áramótin 2011-2012

 

 

Jæja, þá eru áramótin að renna upp og þá er góður siður að líta yfir farinn veg, eða árið sem er að líða og einhvern veginn finnst mér ekkert geta sagt sérstakt um þetta ár, þetta var ekki gott ár.  Ég hef fundið fyrir svo mikilli andlegri þreytu vegna alls þessa leiðinda stjórnmála en samt eru margir frábærir hlutir sem gerðust.

Við fórum til útlanda fjölskyldan en það höfðum við ekki gert í mörg ár.  Fín ferð en ekkert sérstakt situr eftir. 

Þráinn náði að hífa leikfélagið upp úr lægstu lægðum og nú er það aftur komið á blað með öðrum áhugaleikfélögum og jafnvel meira en það því Fúsi Froskagleypir setti met bæði í aðsókna á sýningum og eins virðist DVD diskurinn vera að rúlla feitt.  Heyri úr öllum hornum að krakkar hafi verið að horfa á hann eða horfi á hann daglega svo það eru auðvitað frábærar fréttir líka.  Þráinn minn formaðurinn lét líka stórt hlutverg í fyrri uppsetningunni á leikritinu og svo lét Ástrós Mirra stórt hlutverk í báðum uppfærslunum og þau eru bæði sem sagt í sýningunni sem var tekin uppá DVD.  En þetta sýningarferli tók á því auðvitað er það erfitt sérstaklega fyrir börn að eiga ekki helgarfrí í nærri hálft ár.  Þannig að þegar síðasta sýning var þá voru svona blendnar tilfinningar sem bærðust um í minni fjölskyldu.

Ég seldi nokkrar myndir til notkunar í markaðs- og kynningarefni og var það mjög ánægjulegt.  Ég var líka fengin til að taka starfsmannamyndir af starfsfólki Maritech eftir að myndirnar frá ljósmyndaranum sem kom að taka þær floppuðu (enda gaf hann hverjum og einum 2 mín í tökur og það dugir bara ekki fyrir flesta)  Hann er samt góður ljósmyndari þessi strákur, ég hef séð frábærar myndir eftir hann en þetta var greinilega ekki hans sérgrein, þe. fólk.

Já og við fórum tvisvar í hálendisferðir með Sigga stjúpa, sem voru æðislegar, við eigum nefnilega ekki bíl sem gengur þangað og frábært að fá ferð með honum, og líklega frábært fyrir hann að fá félagsskap af okkur. Konný og Markús komu með í aðra ferðina og svo fórum við Konný líka saman tvær í hringferð um Snæfellsnesið og það var æðisleg ferð líka.  Ég er sko búin að uppgötva nýjan ferðamáta hér á Íslandi og er það að vakna eldsnemma og fara og stað fyrir kl. 7 á morgnanna og ferðast allan daginn og koma kannski heim um og eftir miðnætti og hafa þar með fengið út úr ferðalaginu tveggja daga túr á einum degi og eiga svo hinn daginn á helginni heima í afslöppun og kósíheitum.  Miklu frekar en að vera að þvælast með tjald og eyða hálfum degi í að finna tjaldstæði, tjalda og allt það vesen.  Ætla að gera meira af þessu í framtíðinni, hver sem hún verður.

Ég fór líka á ljósmyndanámskeið hjá Gassa sem var ofboðslega skemmtilegt og við systur erum að spá í að reyna að fara á námskeið  í lightroom vinnslu hjá öðrum ljósmyndara á næsta ári, vonandi gengur það eftir.  Annars höldum við áfram sjálsnáminu sem er alveg að skila sínu líka.

Aðrir sigrar á árinu eru talsvert minni, en auðvitað eru þeir margir.  Það var oft mjög gaman að fá að leika bestu frænku í heimi með Ríkharði ljónshjarta og sjarmatrölli.  Það er líka búið að vera æðislegt að fylgjast með hinu sjarmatröllinu sem fæddist á árinu og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni.  Eins hafa öll systkinabörnin verið að gera frábæra hluti í námi og áhugamálum þó þau lendi ekki á síðum dagblaða og þess háttar.  Allt frábærir krakkar í okkar fjölskyldum og gott fólk.

En það skyggir óneitanlega mikið á að Þráni var sagt upp vinnunni og það varð leiðindamál og hann endaði á að sækja sér vinnu í Noregi.  Sem aftur á móti þýðir að kannski verða stórbreytingar á okkar högum á næsta ári, hver veit.  Ég er alla vega ekki tilbúin í annað ár eins og það síðasta og þá er ég að meina þjóðfélagslega.  Ég er orðin svo þreytt á allri þessari neikvæðni sem ríkir á Íslandi, allri þessari græðgi sem líka virðist vera að tröllríða öllum.  Öllum þessum óheiðarleika sem hefur viðgengist og allt of mörgum finnst allt í lagi af því að það er kannski á gráu svæði, en ekki endilega hreinn glæpur.  Mig langar í bjartsýni, von og gleði.  Ég þurfti að hlusta á lagið hans Rúna Júl í flutningi Palla nánast daglega til að geta verið í góðu skapi og ég þurfti á tímabili að hætta að horfa á fréttir því ég varð bara þunglynd af því.  Ég er nefnilega ein af þeim sem á það til og þarf alltaf að vera vakandi og passa mig á að lenda ekki í aðstæðum sem draga mig niður.

En Þráinn er sem sagt farinn að vinna í Noregi í bæ sem heitir Mandal og er sunnarlega, með baðstrendur, fallegt landslag og skóga.  Honum líkar vel þarna So far, er bara búinn að vera í 5 vikur, sem mér fannst nú alveg vera á við 7.  Saknaði hans mikið og var pínu einmana, þá get ég alveg ímyndað mér hvernig honum hafi liðið.  Samt er hann alltaf kátur og  finnst þetta bara vera tækifæri sem honum hlotnaðist.  Ég get svo sem alveg verið sammála því og ef okkur Ástrós Mirru líst vel á þennan stað þegar við förum að heimsækja hann í lok febrúar, þá tökum við ákvörðun upp frá því um flutning.  En það verður þá gerð prufa til eins árs og framtíðin skoðuð út frá því.  Að mörgu leiti finnst mér þetta mjög spennandi, en að mörgu leiti óskaplega stórt skref og mikið sem þarf að hugsa um áður en hægt sé að taka það.

En einhvern veginn virðist okkur ætlað að breyta til á 15 ára fresti því við kynntumst eins og flestir vita 1982 í Eyjum.  1996 flutti Þráinn á undan mér uppá land, ég kom 4 mánuðum seinna og við hreiðruðum um okkur í Hafnarfirðinum.  Núna 2011 er hann fluttur til Noregs að vinna og þá er þetta spurning hvort við mæðgur förum á eftir honum nokkrum mánuðum seinna.  Það kemur í ljós í mars á næsta ári hvað við gerum.  En ef við flytjum þá gerum við það næsta sumar, notum þá sumarfríið til að koma okkur fyrir og kynnast aðstæðum.  Það verður auðvitað ekki auðvelt fyrir Ástrós Mirru að byrja í skóla í nýju landi en krakkar hafa ótrúlega mikla aðlögunarhæfileika og hún er spennt fyrir þessum breytingum sem hjálpar til.  Það væri verra ef hún væri ósátt, ég er ekki viss um að við værum neitt að skoða þennan möguleika þá.

En allavega gott fólk, árið 2012 rennur upp á morgun og ég vona svo sannarlega að það verði gott ár, fyrir okkur öll.

Ætla að enda þetta með því að deila með ykkur uppáhaldsmáltækjunum mínum sem mér finnst svo ótrúlega oft eiga við.

 

Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

Þetta sannaðist vel hjá mér núna, þegar Þráinn var farinn til Noregs og ég þurfti bókstaflega að sjá um allt, og gera allt sjálf og fattaði bara hvað hann er frábær, sætur og góður eiginmaður.
 

Enginn veit sýna framtíð fyrr en öll er

Þetta spakmæli á við núna, þegar manni sýnist að það geti orðið breytingar á okkar högum, það veit enginn alla framtíðina fyrr en henni er lokið, það er nokkuð ljóst.
 

Lífið er bara eitt leikrit, það er bara spurning í hvaða hlutverk við förum í miðað við aðstæður

Þetta er heimatilbúið spakmæli, því einn góður vinnufélagi minn sagði þetta einu sinni við mig og ég hef viljað halda þessari setningu uppi, málið er nefnilega að það fer alveg eftir því við hvern þú talar í hvaða hlutverki þú ert.  Ef ég tala við viðskiptavin sem er uppáklæddur í dragt og háa hæla, þá fer ég í allt ananð hlutverk en ég er í þegar ég tala við konu sem er með mér í ljósmyndaklúbbnum og stendur fyrir framan mig ómáluð klædd í hlý föt og með góða myndavél og tilbúin að framkvæma listaverk á vélina sína.  Ég finn reyndar svo oft fyrir því að ég geti sjaldnar og sjaldnar verið ég sjálf, nema kannski í ljósmynduninni og heima hjá mér.  Það eru gerðar allt of miklar kröfur í okkar þjóðfélagi um að við séum svona og svona og ekki nóg þol hjá okkur að taka fólki eins og það er.  Og nú hljómar Palli aftur í hausnum í mér því hann söng líka annað lag, sem segir Ég er það sem Ég er.  Frábært lag, frábær orð.
 

Sá sem spyr er bjáni í bili, en sá sem spyr aldrei verður alltaf bjáni

Þetta er bara uppáhalds.  Heyrði það fyrst á Raufarhöfn þegar við Þráinn fórum þangað í brúðkaupsferð að leika í bíómynd.  Hef oft hugsað um það sérstaklega þegar ég er á námskeiðum og virðist oft vera eina manneskjan sem skilur ekki hlutina.  Er allavega eina manneskjan sem spyr oft á tíðum og oft hef ég komist að því eftirá að hinir skyldu ekki neitt en þorðu ekki að spyrja.  Gott spakmæli og skýrir sig algjörlega sjálft.

Lífið er gáta, lausnin er aftaná.

Þetta er líka búið að uppáhaldsspakmæli lengi og segir sig sjálft.
 
Jæja gott fólk þá fer þessu síðasta bloggi ársins og ljúka og ég óska ykkur gleðilegs nýs árs og bið ykkur að ganga hægt um gleðinnar dyr og fara varlega með flugeldana.
 
Notið gleraugun, líka fullorðnir.
 
Ykkar 
Kristín Jóna

26.12.2011 19:45

Annar í jólum

Jæja sit og hlusta og horfi á Palla og Sinfó, næs endir á jólahelginni.

Fengum hérna fína gesti í dag, fjölskylduna hans Þráins og voru allir eitthvað svo rólegir og skemmtilegir.  Yfirdrifið nægur matur, spurning að vera með næst bara sild, lax, skinku og súpu og sleppa hangikjetinu því það var nærri allt eftir, enda þau hin á leið í annað boð eftir okkar.

Í gær vorum við hjá Aron bróður og var það æðislegt, gott að hitta mitt fólk og góður matur.  Krakkarnir fóru meira að segja út að leika sér, það gerist nú ekki oft.

 

En ég var ekki með myndavél í gær en við (aðallega þó Þráinn) tókum nokkrar myndir í dag og þessar sýna svolítið hvernig dagurinn var.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

25.12.2011 08:01

Gleðileg jól

Jæja þá er jólahátíðin gengin í garð og ég sit hér ein á jóladagsmorgun og hlusta á KK og Ellen fara svo ljúft með jólalögin, með kaffibolla mér við hlið og hugsa um yndislegt kvöld í gær og allar fallegu gjafirnar sem við fengum

Besta gjöfin mín er þó lítill jólasveinn sem keyptur var í Noregi og er með skegg niður á mitti.  Þráinn minn líka kominn með skegg eins og ég vil hafa hann og ég held hann sé að fatta þetta jólasveinadæmi.

Það voru óvenjumargir pakkar hér í gær og aldrei slíku vant átti heimasætan þá ekki alla.  Ég held það séu mörg ár síðan ég hef fengið svona marga pakka og hvern annan flottari.

Ég fékk til dæmis bæði Arnald og Yrsu og það þýðir að þetta verða yndisleg jól, fékk líka jóladisk og get spilað ljúfa tónlist meðan ég er að lesa spennubækurnar.  Einnig fékk ég jólaskraut, tertubakka og spaða, handklæðasett, kerti og jólaskraut.  Svo fékk sérstaka vinagjöf frá elsku Maddý, uppáhaldsilmvatnið mitt, krem og sápu.  Þráinn fékk bol, Top Gear syrpu og bók fyrir utan það sem við fengum saman.

Svo keyptum við hjónin okkur nýjar dýnur í rúmið okkar sem koma á milli jóla og nýjárs

Ástrós Mirra fékk fullt af æðislegum fötum, eitthvað af skartgripum, 2 bækur, mjög sérstakt tré með hreindýrum til að hengja skartgripi á, snyrtivörur, töff eyrnaskjól með headsetti í og ábyggilega margt fleira sem ég man ekki akkúrat núna.

Við mæðgur fórum einmitt saman uppí rúm í gærkvöldi að lesa, mjög kósí hjá okkur.

Í dag verður slakað á, þangað til við förum seinnipartinn og hittum mína fjölskyldu heima hjá Aron bróður og á morgun verðum við með jólaboðið fyrir Þráins fjölskyldu.  Þetta verða án efa góðir dagar við birtu, ljós og yl jólanna í góðum félagsskap.

Hér er smá sýnishorn af jólunum okkur, já Kristín Jóna tók nokkrar myndir á aðfangadag.  Kannski hún geri bara meira af þessu núna um hátíðarnar, því þá eru allir svo sætir og fínir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þangað til næst,

Ykkar Kristín Jóna.

Gleðileg jól

12.12.2011 18:16

Skammdegis.......

þunglyndi eða alla vega leiði. 

Já það er einhver leiði í mér þessa dagana, veit ekki hvort það tengist því að nú er komið á sjöttu viku síðan Þráinn fór til Noregs eða hvort það er bara af því að það er ekkert að gera í vinnunni hjá mér og mér bara dauðleiðist þar þessa dagana.  Fékk þó í dag að hjálpa stelpunum í mótttökunni að pakka inn gjöfum fyrir jólamorgunverðarfundinn sem er á GrandHotel á morgun.
Já og það er annað, langar svo sem ekkert sérstaklega á þennan fund, nenni ekki að fara í spariföt og labba um og tjatta og brosa framan í kúnna.  Humm, þarf ég að blása á mér hárið og kannski mála mig líka, nei er ekki að nenna því svo líklega er ég bara pínu þunglynd þessa dagana og vona að það lagist með heimkomu Þráins, veit að hann mun alla vega knúsa mig og reyna að hressa mig við, hann hefur alltaf getað það.

Væri til í að búa einhver staðar þar sem bara væri íslenskt sumar allan ársins hring, þ.e bjart og milt veður.  Þoli ekki þetta myrkur, kemst ekki út að mynda nema um helgar ef ég er ekki að fara að gera eitthvað annað þá.  Ömurlegt myrkur og leiðindi.  En ég ætla að ná þessu úr mér en bara ekki alveg strax því ég nenni því ekki.  Nenni ekki að reyna......
Nenni ekki neinu þessa dagana, nenni ekki einu sinni á fésið því þar er allt svo eitthvað ódýrt og enginn að gera neitt merkilegt.

Jæja ok, eftir því sem ég skrifa meira fatta ég þetta þunglyndi og lofa ykkur að ég næ því úr mér ef ég nenni.

þangað til næst,
ykkar Kristín Jóna

10.12.2011 18:09

Öryggismál

Fann vel fyrir grasekkjunni í mér í dag.

Er að fara að sækja Mirruna niður í Ljósheima og smá snjóbylur kominn í Hafnarfirði þegar ég uppgötva að rúðuþurrkurnar virka ekki.  Ég ákveð að það borgi sig ekki að keyra í bil og engar þurrkur.  Sný við heim en uppgötva þá að veðrið virðist vera að ganga niður svo ég ákveð aftur að fara niður í Ljósheima og þegar ég er komin til móts við N1 í Hafnarfirði þá er aftur kominn éljagangur og engar rúðuþurrkur svo ég ákveð að á N1 hljóti að vera karlmenn sem geti aðstoðað mig við að athuga hvort það sé farið öryggi hjá mér en Nei, starfsmaðurinn þar benti mér að fara á smurstöð en þær eru ekki opnar á laugardögum svo ég aftur út í bíl og andskotinn ég get ekki verið rúðuþurrkulaus í einhvern tíma og hringi bara til Norge í Eiginmanninn sem hafði bara ekki hugmynd um hvað öryggin væru í bílnum.
Já nú voru góð ráð dýr .... eða ekki.

Grasekkjan fór í hanskahólfið og sótt helv. manualinn og fór að lesa sér til.  Fann hvar öryggin eru og fann út hvaða öryggi var farið, ákvað að gera þetta einfalt og rífa út öryggið fyrir útvarpið því það er alveg hægt að keyra í kafaldsbyl með ekkert útvarp og skipti um öryggi og viti menn (og konur) þurrkurnar í gang.  Svo ég keyri niður í Ljósheima, sæki Mirruna og við í Elko að sendast fyrir Konný systur.  Þá allt í einu eru þurrkurnar aftur dottnar úr sambandi og kominn kafaldsbylur aftur.
Nú hvað átti ég þá að rífa úr sambandi?  Humm - airbags þarf ekki að hafa farþegamegin ef enginn er farþeginn nema dóttirin í aftursætinu svo enn var rifið úr öryggi og skipt um.

Við komumst heim og á morgun verð ég að finna út hvar getur maður keypt öryggi svo ég geti sett ný í staðinn fyrir þessu ónýtu og síðan er það seinni tíma vandamál (Þráinn kemur nú heim á föstudaginn) að finna út af hverju rúðupissið drepur öll öryggi hjá okkur.

Þangað til næst
Ykkar Kristín Jóna
Grasekkjan á Völlunum.

09.12.2011 09:41

Óvenjulegur tími

Ég veit ekki hvort það hefur eitthvað með það að gera að Þráinn er í Noregi en ég er búin að vera frá vinnu 2,5 dag í desember, fyrst út af magapínu og svo núna út af bakinu á mér.  Bara aldrei fengið svona slæman mjaðma- læris- hnáverk.  Þó stundum fengið svona verk en ekki þannig að ég hafi þurft að gleypa 800 mg af ibufen til að það slái á verkinn.  En ég er þó skárri og það er gott.  Ætla samt að vera heima í dag og hvíla bakið og fara svo á göngubrettið um helgina til að fara að styrkja það líka.  Þetta gæti verið bakslag frá því að ég labbaði um allt og tók strætó áður en Þráinn fór út en núna sit ég í bíl eða við skrifborð.  

Jæja jólin á næsta leiti og ég langt komin með jólagjafirnar og bara búin að njóta þess að kaupa þessar gjafir núna.  Ekki eins mikið stress og oft áður.  Samt er búið að vera kreisí að gera í myndatökunum en nú er ég komin í jólafrí í þeim efnum nema ein stúdentamyndataka fyrir góða vini.

jæja þangað til næst,
Ykkar Kristín Jóna

19.11.2011 19:18

Þráinn í Noregi

jæja, ætli það sé ekki kominn tími á smá skrif.  Ýmislegt hefur nú gerst síðan síðast og helstið er að Þráinn er farinn til Noregs að vinna og við mæðgur sitjum hér og söknum hans helling alla daga.

Ástæðan fyrir því að að hann fór út til Noregs að vinna er að honum var sagt upp hjá Gluggum og Garðhúsum af því að hann vildi ekki leyfa eigandum að brjóta á rétti sínum. Það er víst dálítið misjafnt hvað okkur finnst mikilvægt í lífinu og þar sem Eigandanum fannst Þráinn vera vælukjói og bara grenjandi yfir engu (sem þó voru launin hans til að framfleyta fjölskyldunni sinni) þó það væri hann sem svæfi ekki yfir áhyggjum af því hvernig fyrirtækinu mynda reiða af.  Það hefði trúlega reddað því að lækka launin hans Þráins um 500 krónur á tímann.  Líklega bara þröngsýni í okkur að sjá það ekki.  Á sama tíma keypti Eigandinn sér nýjan 8 milljón króna jeppa og er með dætur sínar á launaskrá án þess að .þær mæti í vinnu.  Einnig á hann sjálfur húsnæðið sem leigir Gluggum og Garðhúsum það og þar var víst 10 milljón króna hagnaður á sama tíma og G&G var rekið með 10 milljón króna tapi.  Skiptir greinilega máli hvort peningurinn sé í hægri eða vinstri hendinni.  En allavega þá skiljum við þetta ekki og erum ekki tilbúin að láta fara illa með okkur á vinnustað.
Svo þegar við sáum að launin hjá smiðum hér heima eru ekki meiri en 300.000 kr. á mánuði og lítið um vinnu að hafa lika, þá ákvað Þráinn að kíkja yfir hafið og athuga hvort það væri ekki bara hægt að fá vinnu í Noregi og upplifa ævintýri í leiðinni.

En auðvitað er þetta ekkert auðvelt og setur smá strik í reikninginn hvað það er dýrt að lifa í Noregi og hvað flugið á milli er ofboðslega dýrt.  En það eru nú góðar fréttir í þeim efnum því Norwegian er að fara að fljúga á milli fyrir 8þús kr. íslenskar en við erum að kaupa flug í dag fram og til baka á 110.000 svo það munar aldeildis.

En það er vel hugsað um hann þarna, lifir samt pínu ennþá eins og á verbúð en á von með að flytja í aðra íbúð og þar ætti það að vera heimilislegra.

Við erum voða ánægð með Skype og tölum saman jafnvel tvisvar á dag en það gengi ekki ef við þyrftum að borga fyrir það.  Svo er svo gott að sjá kallinn líka ekki bara tala.  Sjá brosið og hvort hann hafi nú rakað sig eða ekki.  :)

Ástrós Mirra er orðin 11 ára gömul og var haldið uppá afmælið hennar í síðustu viku (án pabbans).  Höfðum við bara kósý afmæli með kjúklingasúpu og pylsum og ís í eftirrétt á laugardaginn sl. og svo var bekkjarafmælið á mánudaginn 14. nóv. og þá skelltum við okkur í keilu og snæddum pizzur hér heima á eftir. Æðisleg 2 afmæli og við slógum botninn úr tunnunni með því að kaupa nýja tölvu hada skvisunni en hún var búin að safna sér 85.000 kr. og við bættum við það jólagjöfinni frá okkur svo hún keypti sér nýja tölvu á 95.000, fékk lánaðan skjá frá Klöru Hrönn og við áttum lyklaborð og mús en þá uppgötvuðum við að það vantaði netið og það kostaði nú alveg 12.900 að fá það í viðbót en þá held ég nú að hún sé farin að keyra leiki á rosalegu tryllitæki.
Stelpan er tölvunörd eins og mamma sín.

Oddgeir heitinn Kristjánsson hefði orðið 100 ára þann16. nóvember sl. og í tilefni af því voru tónleikar í Hörpunni þar sem lögin hans voru spiluð undir stjórn Þorvaldar Bjarna.  Ég var búin að kaupa miða og stóð allt í einu frammi fyrir því að þurfa að leita mér að vini.  Ég byrjaði nú á að bjóða mömmu með mér en hún var svo lasin að hún treysti sér ekki svo ég bauð Hugrúnu vinkonu og fórum við út af borða á undan og reyndum að tala um allt sem hefur gerst síðan við hittumst síðast sem er allt of langt síðan.  Áttum við vinkonurnar frábæra kvöldstund saman og voru tónleikarnir æðislegir og Harpan er Stórkostlegt hús.  Var reyndar pínu auðvelt að villast þarna en þetta gekk upp á endanum.

Nú svo er liklega síðasta sýningarhelgi á Fúsa Froskagleypi núna og eru krakkarnir orðnir ansi þreyttir á þessu enda 25 sýningar búnar og bara núna eftir sumarfrí eru þær orðnar 15 og aldrei frí um helgar sem getur orðið þreytandi þegar maður er kannski bara 11 eða 12 ára.  Eins er leikritið komið út á dvd diski sem er voða gaman.

Þetta er búið að vera mikið ævintýraár í leikfélagi Hafnarfjarðar og má Þráinn eiga allan heiðurinn af því, Leikfélagið er á þessum stað í dag vegna þrjósku hans og dugnaðar.

Nú eru jólin að nálgast að þá verður allt kreisí í myndatökunum en ég ætla að reyna að sleppa við að mynda um helgar í desember, því við eigum auðvitað að njóta aðventunnar saman fjölskyldan.  Og já Þráinn kemur í frí þann 16. desember og verður til 3. janúar hjá okkur.  Svo líklega förum við í heimsókn til hans 28. feb. í vetrarfríinu hennar Ástrósar og það verður gaman að fá að skoða staðinn sem hann býr á núna.

Jæja gott fólk, þangað til næst.
Ykkar Kristín Jóna
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 268
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 284163
Samtals gestir: 61335
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 00:29:06