12.12.2011 18:16
Skammdegis.......
þunglyndi eða alla vega leiði.
Já það er einhver leiði í mér þessa dagana, veit ekki hvort það tengist því að nú er komið á sjöttu viku síðan Þráinn fór til Noregs eða hvort það er bara af því að það er ekkert að gera í vinnunni hjá mér og mér bara dauðleiðist þar þessa dagana. Fékk þó í dag að hjálpa stelpunum í mótttökunni að pakka inn gjöfum fyrir jólamorgunverðarfundinn sem er á GrandHotel á morgun.
Já og það er annað, langar svo sem ekkert sérstaklega á þennan fund, nenni ekki að fara í spariföt og labba um og tjatta og brosa framan í kúnna. Humm, þarf ég að blása á mér hárið og kannski mála mig líka, nei er ekki að nenna því svo líklega er ég bara pínu þunglynd þessa dagana og vona að það lagist með heimkomu Þráins, veit að hann mun alla vega knúsa mig og reyna að hressa mig við, hann hefur alltaf getað það.
Væri til í að búa einhver staðar þar sem bara væri íslenskt sumar allan ársins hring, þ.e bjart og milt veður. Þoli ekki þetta myrkur, kemst ekki út að mynda nema um helgar ef ég er ekki að fara að gera eitthvað annað þá. Ömurlegt myrkur og leiðindi. En ég ætla að ná þessu úr mér en bara ekki alveg strax því ég nenni því ekki. Nenni ekki að reyna......
Nenni ekki neinu þessa dagana, nenni ekki einu sinni á fésið því þar er allt svo eitthvað ódýrt og enginn að gera neitt merkilegt.
Jæja ok, eftir því sem ég skrifa meira fatta ég þetta þunglyndi og lofa ykkur að ég næ því úr mér ef ég nenni.
þangað til næst,
ykkar Kristín Jóna
Skrifað af Kristínu Jónu
Flettingar í dag: 251
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 372
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 310847
Samtals gestir: 64530
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:06:51
