21.01.2012 08:21

Nýtt ár - nýjir tímar

Jæja þá er nýtt ár komið, árið 2012.  Það þýðir 12 ár síðan Ástrós Mirra fæddist og það vantar bara eitt ár uppá að ég fylli næsta áratug hvernig svo sem getur staðið á því.  

Þráinn er farinn aftur út til Noregs og þetta gengur allt mun betur núna en fyrsta þegar hann fór fyrst út.  Hann er líka kominn með betri nettengingu og það þýðir að auðveldara er að tala við hann og sjá hann, það skiptir nefnilega svo miklu máli að geta séð hann, ekki bara tala.  Svo er það bara þannig að þó það sé vont þá venst það.

Við Ástrós Mirra erum að plana ferðina okkar til Noregs en við ætlum að fara út 28. feb. nk. og vera í tæpa viku.  Hlakka mikið til að sjá þetta allt hjá honum og sjá þennan fallega bæ.

Svo er ég að fara til Budapest í lok apríl með vinnufélögunum og er ég búin að gera ráðstafanir til að ég verði ekki ein.  Búin að fá frábærar konur til að ættleiða mig í ferðinni.  Við ætluðum nú að fá okkur 3 manna herbergi saman en þegar við komumst að því að 3 manna herbergi er bara 2 manna herbergi með aukabedda í þá hættum við, við það þar sem við erum allar komnar yfir fertugt og viljum góð rúm að sofa í.  Svo við tökum bara 2 + 1 og sjáum svo til hvernig við skiptum okkur, en það þýðir að sú sem er ein í herbergi verður alltaf tekin með þegar hinar fara í morgunmat og út að leika.  Ég er meira að segja farin að hlakka til þessarar ferðar sem ég hélt ég myndi ekki gera í ljósi þess að Þráinn minn kemur ekki með.

Ég er búin að sjá það út núna síðustu vikur hvað maður er ofboðslega háður honum.  Hvað maður er líka orðinn háður því að hann geri þetta og ég geri hitt, svo þegar hann er ekki þá ÚPS allt í einu verð ég að gera allt sjálf.  Dæmi um það eru þessar sögur sem ég var reyndar búin að setja á fésið:

 

#1  -  Fann vel fyrir grasekkjunni í mér í dag.

Er að fara að sækja Mirruna niður í Ljósheima og smá snjóbylur kominn í Hafnarfirði þegar ég uppgötva að rúðuþurrkurnar virka ekki. Ég ákveð að það borgi sig ekki að keyra í bil og engar þurrkur. Sný við heim en uppgötva þá að veðrið virðist vera að ganga niður svo ég ákveð aftur að fara niður í Ljósheima og þegar ég er komin til móts við N1 í Hafnarfirði þá er aftur kominn éljagangur og engar rúðuþurrkur svo ég ákveð að á N1 hljóti að vera karlmenn sem geti aðstoðað mig við að athuga hvort það sé farið öryggi hjá mér en Nei, starfsmaðurinn þar benti mér að fara á smurstöð en þær eru ekki opnar á laugardögum svo ég aftur út í bíl og andskotinn ég get ekki verið rúðuþurrkulaus í einhvern tíma og hringi bara til Norge í Eiginmanninn sem hafði bara ekki hugmynd um hvað öryggin væru í bílnum.
Já nú voru góð ráð dýr .... eða ekki.

Grasekkjan fór í hanskahólfið og sótt helv. manualinn og fór að lesa sér til. Fann hvar öryggin eru og fann út hvaða öryggi var farið, ákvað að gera þetta einfalt og rífa út öryggið fyrir útvarpið því það er alveg hægt að keyra í kafaldsbyl með ekkert útvarp og skipti um öryggi og viti menn (og konur) þurrkurnar í gang. Svo ég keyri niður í Ljósheima, sæki Mirruna og við í Elko að sendast fyrir Konný systur. Þá allt í einu eru þurrkurnar aftur dottnar úr sambandi og kominn kafaldsbylur aftur.
Nú hvað átti ég þá að rífa úr sambandi? Humm - airbags þarf ekki að hafa farþegamegin ef enginn er farþeginn nema dóttirin í aftursætinu svo enn var rifið úr öryggi og skipt um.

Við komumst heim og á morgun verð ég að finna út hvar getur maður keypt öryggi svo ég geti sett ný í staðinn fyrir þessu ónýtu og síðan er það seinni tíma vandamál (Þráinn kemur nú heim á föstudaginn) að finna út af hverju rúðupissið drepur öll öryggi hjá okkur.

 

#2  -  Jæja enn og aftur reyndi á grasekkjuna áðan. Við mæðgur í letistuði og leigðum okkur mynd, hún er öll hoppandi og skoppandi og hleypur yfir 6 kafla. Ég hringi að athuga hvort annað eintak sé inni en svo er ekki svo við megum koma aftur á morgun og fá aðra mynd. 

Flott tek diskinn úr spilaranum en enginn diskur á sleðanum!!!!!!! Hvar er diskurinn? Hristi spilarann og enn enginn diskur. 

Ok, áður en ég veit af er Mirran mín búin að sækja skrúfjárn og við byrjum að skrúfa sundur spilarann. Reynum að hringja í Þráin á Skype en hann ekki online svo við klárum verkið. Spilarinn í sundur og með afli náðist að taka hann í sundur og diskurinn datt út. Við skrúfuðum saman aftur og allt í lagi á þessu heimili. Held ég sé að virkilega farin að finna fyrir gamla jaxlinum sem gat allt sjálf áður en ég eignaðist mann sem gat flest betur. 

Ok, aftur í leti og nú er það idolið....................

 

Svo eins og þið sjáið þá rifjast upp gamlir taktar með því að hafa bara sjálfan sig til að stóla á en auðvitað er það samt ekki þannig að ég hefi engan til að stóla á, en málið er bara svolítið þannig að Þráinn minn á ekki auðvelt með að biðja annað fólk um greiða en mikið er hann alltaf duglegur að hlaupa til ef einhver biður hann um greiða og það er kannski þess vegna sem ég kann ekki lengur að biðja annað fólk að hjálpa mér en ég fékk nú að heyra það í vikunni frá honum bróður mínum Aron að framvegis ætti ég ekki að stóla á einhverja sölumenn í tölvubúðum með ráðleggingar og þess háttar enda búin að láta þá rýja mig innað skinni á meðan hann hefði verið 20 mín með að benda mér á rétta hlutinn sem hefði kostað 3sinnum minna.  Og já hann bætti því meira að segja við, að framvegis myndi hann móðgast ef ég leitaði ekki ráða hjá honum, því hann væri bara eins og ég með myndatökurnar, honum finnst gaman að því og vill fá að hjálpa.

Aron er svona eins og Þráinn segir alltaf já þegar hann er beðinn um aðstoð og það er bara yndilsegt að eiga svoleiðis bróður.  Hann er þvílíkt búinn að hjálpa okkur Ástrós Mirru að koma netinu almennilega í tölvuna hennar en það gekk erfiðlega án hans.

Takk fyrir okkur Aron.

Konný systir er í tækniskólanum í ljósmyndanámi og ég ætla að taka sömu verkefni og hún fær í ljósmyndaáfanganum og er núna svo uppfull af hugmyndum um myndir sem eiga að sýna hvaðan ég kem að ég get bara ekki beðið eftir að það birti.  Ansk. Djöf. myrkur allaf hérna gjörsamlega óþolandi.  Ég veit líka svo sem að þessi mánuður og sá næsti eru mér erfiðastir enda jólin búin og allt bara venjulegt aftur með meira myrkri og leiðindaveðrum alla daga.  En í mars fer að birta og þá fæ ég vor í hjartað.  Hlakka til vorsins enda er ég vorbarn.

 

Jæja þangað til næst;

Ykkar Kristín Jóna

 

 

Me once again

Flettingar í dag: 251
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 372
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 310847
Samtals gestir: 64530
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:06:51