28.01.2012 15:05
Kristín skiptir á vatni á fiskabúrum.
Sem grasekkja þarf ég að gera allt. Og þá meina ég gera allt sem eiginmaðurinn hefði gert væri hann heima. Til að mynda að skipta um vatn á fiskabúrunum 3 sem eru hér á heimilinu. Ekki bað ég um þessi fiskabúr, ekki bað ég um að fá þetta hlutverk en mér er ætlað að sjá um alla hluti núna svo það er best að vinda sér í verkið.
Ok, það er einhver 300 metra slanga inní geymslu sem þarf að nota það er nefnilega hægt að fara með hana tvo hringi í kringum íbúðina svo hún nái á milli allra fiskabúranna. Það þarf að finna einhvers konar hálfmána sem henni er stungið í gegnum svo hún geti hangið á fiskabúrinu. Tékk
Set hinn endann ofan í baðkarið og svo ..... úps ég þarf víst að sjúga svo vatnið fari að streyma í gegnum slönguna. Ok, einn, tveir og þrír..... soooooooooooooooggg og shit, shit shit, helvítis fiskabúrsvatn fyllti munninn á mér. Hendi slöngunni ofan í baðkarið aftur og fylgist með meðan það lekur úr búrinu. Þið vitið að það er sko ákveðið magn sem á að taka úr búrinu í hvert sinn, má ekki vera of mikið og alls ekki of lítið því þá ruglast systemið í búrinu og eymingjast fiskarnar deyja bara. Ég held ég sé alveg með þetta með magnið á hreinu. Jæja, búin að sjúga uppúr einu búri en þá eru tvö eftir. Verð að viðurkenna að æfingin skapar meistarann, það er staðreynd, því það gekk betur að sjúga uppúr næstu tveimur.
Jæja, hálfnað verk þá hafið er..... nei, nú er verkið hálfnað því næst á að finna einhverja rosalega græju með hitamæli sem festa skal á kranann á baðinu og svo slönguna á hinn endann en róleg, alveg róleg, því það má ekki gerast fyrr en vatnið er akkúrat 24 gráður. Þannig að það þarf að bíða aðeins, minnka smá hitann... nei auka aðeins og jú núna er ég með þetta. 24 gráður og þá skal slöngunni stungið á hinn endann, en það er ekkert venjulegt verk, þarf helst verkfræðing í það en af því ég hafði góðan leiðbeinanda þá tókst mér þetta skammlaust. Bað Mirruna að standa við búrið svo ekki færi allt á fleygiferð þar þegar ég setti kraftinn á vatnið. Og svo er bara að bíða.... en helv. drulla rótast uppúr búrinu þegar vatnið kemur með svona miklum krafti en ég vona bara að hún setjist svo aftur á botninn og búrið verði sama skrautprýði og það hefur verið í stofunni hér eftir sem áður og mest um vert að fiskunum líði vel.
Allt í allt tók þetta ekki nema 35 mín. Iss og ég sem hélt þetta væri eitthvað mál.
Þangað til næst.
Ykkar Kristín Jóna, grasekkja
ps. Ok, þetta er ekki búrið okkar en það er alveg eins flott.
