29.01.2012 07:53
Kjúkprikusúpan.
Gerði þessa líka frábæru súpu í gær og fékk góða gesti sem fengu ekki nóg af súpunni minni, svo af því að þetta var bullað uppúr mér þá ákvað ég að skrifa niður uppskriftina sem ég geri allt of sjaldan
Nafngiftina á ung stúlka Bjartey, sem var stödd í matarboðinu og kunnum við henni þakkir fyrir.
6 Kjúklingabringur, skornar í þægilega munnbita
5 Kartöflur, einnig skornar í þægilega munnbita
Hálf – 1 Sæt kartafla
Hálfur poki frosnar gulrætur
Tveir laukar
Einn púrrulaukur
Rúmlega hálfur poki frosin paprika
Ein dós brushetta mauk
Ein dós kókósmjólk
Heinz chilisósa 4 msk
Smá sletta af sinnepi
Kryddað með
Karrý, chili, heilmikið af paprikukryddi, salt, hvítlaukspipar og aðeins af kjöti og grillkryddi
Þrír kjúklingasúputeningar
Allt sett í pott með gleði og ánægju og soðið þar til tilbúið.
Ps. held ég hafi ekki gleymt neinu.
