29.01.2012 13:36
Nammikaka Fiðra frænda
Hráefni:
Botn – Karamellusósa –
40gr. Smjör 40 gr. Smjör
100gr súkkulaði 100 gr púðusykur
3 egg 2 msk rjómi
250 gr sykur 100 gr pekanhnetur
150 gr hveiti
1 tsk salt Ofan á
1 tsk vanilludropar 150 gr súkkulaði, grófsaxað
Aðferð:
Hitið ofninn í 175 °
Bræðið saman súkkulaði og smjör í potti við vægan hita. Kælið aðeins.
Þeytið egg og sykur í hrærivél þar til blandan verður létt og ljós
Hellið súkkulaðinu í mjórri bunu saman við og blandið vel
Bætið þurrefnum og dropum varlega saman við
Smyrjið formið með smjöri eða olíu og hellið deiginu í
Bakið kökuna í 17 mínútur
Hitið smjör og sykur að suðu í potti og látið malla í 1-2 mínútur. Hrærið stöðugt í á meðan.
Takið af hellunni og kælið aðeins
Bætið rjómanum út í og hrærið vel saman
Grófsaxið hneturnar og stráið þeim yfir kökuna
Hellið karamellusósunni yfir
Bakið kökuna í 17 mínútur
Stráið súkkulaðinu yfir um leið og kakan er tekin úr ofninum svo það bráðni yfir
Berið fram með ís eða rjóma
